ég er loksins búin að setja ermarnar og búkinn saman á eitt stykki, mikið er ég glöð :)
søndag 30. september 2012
lørdag 29. september 2012
September 28, 2012
Mariusgenser
http://home.online.no/~spion13/strikking/orginal-marius-genser.htm
Hér fann ég munstrið að Maríusarpeysunni norsku. líka gaman að lesa sér aðeins til um sögu munstursins á Wikipedia
http://no.wikipedia.org/wiki/Mariusgenser

September 27, 2012
prjónað jólaskraut
http://www.allfreeknitting.com/ChristmasKnits/13-Knit-Christmas-Tree-Ornament-Patterns#Simple_Knit_Ornaments

ég er byrjuð að hugsa til jólanna í Noregi…. væri ekki sniðugt að prjóna jólaskraut á jólatréð?
September 24, 2012
uppskrift mánaðarins frá Du store alpakka
http://www.dustorealpakka.com/blogg/2012/09/maanedens-gratisoppskrift-september-2012/

ókeypis uppskrift mánaðarins frá Du store alpakka (þú stóra lamadýr ;) ég er að elska norskuna!) þarna er komin ágætis ástæða til að prófa nýja garnið þeirra; HEXA.
þessi fer á to-do listann!
þessi fer á to-do listann!
Etiketter:
HEXA,
Noregur,
to-do listinn,
uppskriftir
September 23, 2012
það er svosem ekki mikið af frétta af prjónunum hjá mér. ég er búin að vera að vinna að þessu tvennu núna.
vinnupeysan hans Friðþórs gengur hægt. mér leiddist uppskriftin svo og svo sá ég eftirá að ég hafði gleymt að auka út eftir stroffið á bolnum. hann Friðþór minn er grannur en ekki svo grannur! þannig að ég rakti upp allt klabbið og er núna að gera einfalda lopapeysu með laskaermum. það verður ekkert munstur en af því að ég á gráa lopann þá geri ég í hana einhverjar renndur. þetta er bara hannað svona jafnóðum.
Guðbjörg getur ekki átt nóg af prjónafötum! ég er sko alveg búin að sjá það, enda eru norðmenn mikið með börnin í prjónuðu. auk þess vantar dömuna lopapeysu fyrir veturinn. þetta er gömul einblöðungsuppskrift af síðu Ístex. rosa skemmtileg peysa. ég er náttúrulega svoddan auli að ég byrjaði á bolnum og prjónaði upp og fattaði svo eftirá að ég hafði gleymt að prjóna munstrið neðst. ég ákvað því enn og aftur að rekja upp og prjóna uppá nýtt.
það er þess virði að rekja upp því maður verður svo miklu sáttari á eftir!

gamalt prjón,
Guðbjörg,
leikskólabörn,
Létt lopi
September 21, 2012
ég er að verða eins og þessi ;) sanka að mér garni!
á einmitt poka af kambgarni sem er sko “sparigarn”, er búin að eiga það alveg heillengi en fer nú að fara að prjóna úr því.
ég hlýt að geta blikkað einhverja heima á Íslandi sem eru til í að senda mér kambgarn!
;)

September 14, 2012
ég fékk pakka í dag!!
ég fékk reyndar fjóra pakka… en í pakkanum frá tengdamömmu var plötulopinn sem ég er búin að bíða eftir. mjög góðir litir! og nýjasta blaðið frá Ístex; Lopi 32. Stefanía prjónaði líka þennan flotta fjólubláan kjól handa Stefaníu Sveinlaugu sinni :)
svo fékk ég pakka frá Hildi frænku. hún var svo góð að senda mér tvö prjónablöð; Lopi og band, og Prjónablaðið Ýr.
Svo fékk ég pakka frá pabba, hann sendi þessa fínu sokka og vettlinga á stelpurnar mínar. hann keypti þá í Handavinnuhorninu á Höfn. virkilega góðar gjafir!!
ég þakka fyrir mig!

Ístex,
Lopi 32,
Lopi og band,
Plötulopi,
Prjónablaðið Ýr
September 12, 2012
ég er byrjuð á vinnulopapeysunni hans Friðþórs. uppskriftin er úr Lopa 30 og heitir Sjón.
ég ákvað að hafa peysuna svarta en er strax farin að sjá eftir því því það er svo erfitt að prjóna úr svörtu… hefði frekar átt að velja hærusvartann. síðan ætla ég að hafa bara einlitt grátt í munstursbekknum.
Friðþór vill endilega að ég reyni að hafa olnbogana þykkri… en ég sé ekki alveg fyrir mér hvernig ég eigi að fara að því.
einhverjar ráðleggingar?

September 11, 2012
lopi lopi!
ég kláraði buxurnar á Diddu dúkku og mikið varð hún Guðbjörg ánægð! núna er Didda í buxunum og með húfuna sem amma Stefanía prjónaði :)
en ég fór út í Kilden í dag og keypti mér lopa… ég keypti álafosslopa í peysu handa Friðþóri og léttlopa í peysu handa Guðbjörgu Sóleyju.
næst á dagskrá er þá vinnupeysa á Friðþór og leikskólapeysa á Guðbjörgu!

dúkkuföt
á dagskránni í dag eru dúkkuföt handa Diddu dúkku.
Friðþóri finnst svo leiðinlegt að sjá Diddu dúkku án fata þannig að ég þarf víst að skella í smá klæðnað handa henni… en ég hef nú ekki mikla nennu fyrir dúkkufataprjón akkurat núna, ég vil miklu frekar prjóna annað par af sokkum.
EN ég á þetta fína afgangagarn í dúkkufötin þannig að ég ætla allavega að skella í einar buxur handa greyinu. Guðbjörg mín verður svo ánægð!

September 09, 2012
í dag er það sokkaprjón…. en fyrirsætan mín er ekkert voða ánægð með að máta
September 08, 2012
jæja þá er flíkin tilbúin!!
ég náði að prjóna þessar fínu ermar úr því sem upphafilega átti að vera sokkapar OG ég náði að klára fjólubláa garnið.
en við nánari athugun er flíkin of lítið á Guðbjörgu en passar á Stefaníu seinna meir.
kannski geri ég aðra útgáfu af þessari peysu einhverntímann seinna :)

afgangar,
leikskólabörn,
Mors Aase,
ungbörn
September 06, 2012
það er ýmislegt sem hægt er að gera úr norska munstrinu…..
September 06, 2012
prjónað úr afgöngum.
þegar ég byrjaði á fjólubláu peysunni hennar Stefaníu þá keypti ég fyrst bara einn hnykil, bara til að sjá hvernig mér líkaði garnið Mors Aase. mér líkaði það ágætlega og fór því aðra ferð út í búð til að versla restina í peysuna. þegar ég kom heim sá ég að ég hafði keypt rangan lit af garni og nennti ekki að rekja upp það sem ég var byrjuð á þannig að ég fór aðra ferð og keypti enn meira garn….
í stuttu máli þá á ég helling af þessu Mors Aase garni og er að reyna að finna eitthvað til að gera úr þessu öllu saman.
um daginn var ég að fletta í bókinni Sokkaprjón, sem er eftir Guðrúnu Magnúsdóttur. þar fann ég skemmtilega sokka sem mig langaði að prjóna og ákvað að nota garnið. það fór þó ekki betur en svo að þegar kom að því að prjóna hælinn þá sá ég að sokkarnir yrðu alltof alltof stórir. þeir myndu meira að segja verða alltof stórir á Friðþór og ekki fæ ég hann til að ganga í fjólubláum sokkum…. ég hinsvegar hafði eytt heilu kvöldi í að prjóna munstrið í þá og vildi ekki rekja það upp.
þannig að núna er ég að vinna í því að gera eitthvað annað úr stykkinu….. útkoman verður spennandi!!

September 05, 2012
hvernig á að prjóna sokka með halldóruhæl/frönskum hæl?
það er í rauninni mjög einfalt. fyrst er fitjað upp og prjónað stroff. passa þarf að fitja upp á sléttri tölu, hér eru lykkjurnar 44 og ég prjóna 2x2 stroff (2 slétt 2 brugðin) ca 6 cm.

þegar stroffið er orðið nógu langt þá prjóna ég 4 umferðir slétt. síðan skipti ég lykkjuföldanum í tvennt, hér 22 lykkjur. ég prjóna 22 lykkjur og geymi hinar 22 lykkjurnar á 2 prjónum.
síðan byrja ég á hælstykkinu. þá prjóna ég fram og til baka, slétt á réttunni og brugðið á röngunni. passa þarf að taka upp fyrstu lykkju hverrar umferðar eins og þú ætlir að prjóna í hana. það þarf líka að passa þegar prjónað er á röngunni að prjóna síðustu lykkjuna líka brugðið.
hér prjónaði ég hælstykkið ca 5 cm.
því næst skipti ég lykkjunum á hælstykkinu í þrennt, hér 7-8-7 og prjóna fyrstu 15 lykkjurnar. svo sný ég við og prjóna frá röngunni næstu 8 lykkjur brugðið. þá sný ég aftur við og prjóna frá réttunni næstu 7 lykkjur, eða þangað til 1 lykkja er eftir að gati, og tek þá 1 lykkju óprjónaða, prjóna næstu og steypi svo óprjónuðu lykkjunni yfir. síðan sný ég við og prjóna frá röngunni þar til 1 lykkja er eftir að gati og prjóna þá 2 lykkjur brugðnar saman. þetta er svo endurtekið þar til miðlykkjurnar 8 eru eftir á prjóninum.
þá þarf að taka upp hliðarlykkjurnar á hælstykkinu. ég sný röngunni að mér og tek upp innri lykkjurnar, hér 10 lykkjur á hvorri hlið.
síðan prjóna ég 1 umferð yfir og þegar ég prjóna í hliðarlykkjurnar þá tek ég í þær á röngunni þannig að snúningur komi á lykkjuna þegar hún er prjónuð. ef hliðarlykkjurnar verða ekki snúnar þá snúa þær vitlaust á prjóninum og þá er einfalt að snúa þeim bara áður en prjónað er í þær á röngunni.
þá er byrjað á úrtöku því það þarf að ná upphaflegum lykkjufjölda, hér 44 lykkjur. úrtaka byrjar þar sem umferðin byrjar (á hliðinni á hælnum). þá er 1 lykkjan tekin óprjónuð, næsta lykkja prjónuð og síðan er óprjónuðu lykkjunni steypt yfir. þá eru prjónaðar næstu 19 lykkjur (eða þar til komið er á hina hliðina á hælnum) og þá eru 2 lykkjur prjónaðar saman, síðan 1 tekin óprjónuð og sú næsta prjónuð og síðan steypt yfir. þá er prjónað til enda umferðar og 2 síðustu lykkjurnar prjónaðar saman.
þessi úrtaka er gerð í annarri hverri umferð þar til ummhaflegum lykkjufjölda er náð.
þá er fóturinn prjónaður, hér 10 cm (frá hæl).
síðan er úrtaka fyrir tá og hún er alveg eins og hælaúrtakan nema að þegar helmingi lykkjuföldans er náð, hér 22 lykkjur, þá er tekið úr í hverri umferð þar til ca 6 lykkjur eru eftir á prjónunum. þá er bandið dregið í gegnum lykkjurnar og togað í.
sokkurinn er tilbúinn!!
September 05, 2012
Lailadrakt
http://www.sandnesgarn.no/ShowFile.ashx?FileInstanceId=ca56ea77-0264-4467-9842-d5576fbccbbf

og hér er önnur barnauppskrift sem væri gaman að prjóna. þetta eru samaföt, kjóll, buxur og húfa.
Etiketter:
grunnskólabörn,
leikskólabörn,
Noregur,
uppskriftir
September 05, 2012
samapeysa og húfa á börn
http://www.sandnesgarn.no/ShowFile.ashx?FileInstanceId=8082c5d5-ef27-428c-bcc8-f5e4e67bf773

ég held áfram að gúggla prjónauppskriftir frá Finnmörku. hérna fann ég samapeysu og húfu á börn sem gaman væri að prjóna. þetta er líka einfalt og flott munstur.
Etiketter:
grunnskólabörn,
leikskólabörn,
Noregur,
uppskriftir
September 02, 2012
ég er búin að fylgjast með blogginu hjá þessari í um ár núna. mér finnst hönnunin hjá henni alveg æðisleg en Marte gerir mikið af ungbarnaprjóni sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. auk þess finnst mér litavalið hjá henni alveg svakalega flott.
hún gaf nýlega út bók með uppskriftum af flíkum á leikskólabörn og ég verð barasta að skella mér á hana:
http://issuu.com/dustorealpakka/docs/01_i_all_enkelhet/1
auk þess hannaði hún nýja línu af garni fyrir Du Store Alpakka…. sem ég á reyndar eftir að prófa:
http://www.dustorealpakka.com/blogg/2012/05/sky-har-vakker-silkeglans/
September 02, 2012
þessi peysa er úr Fleiri Prjónaperlum en þar er hún úr færeysku ullinni Navia duo en hér geri ég hana úr ódýru garni úr matvörubúðinni, garnið er frá Mors Aarse. þetta er garn úr 50% ull og 50% bómull. hún er á Stefaníu en hún notar hana ekki nærri því strax :)
mig hafði lengi langað til að prjóna krílapeysu með lopapeysumunstri… og hér er hún loksins komin!!
mig hafði lengi langað til að prjóna krílapeysu með lopapeysumunstri… og hér er hún loksins komin!!
September 02, 2012
hér er peysa sem ég var lengi að vandræðast með…. þegar ég kom fyrst til Noregs og fann loksins prjónavörubúðina í bænum þá keypti ég þetta flotta flotta garn Mirasol sem er úr lamaull. ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við þetta garn og ég veit ekki hvað ég fitjaði oft upp, prjónaði og rak upp aftur!! en á endanum ákvað ég að skella í svona létta gollu handa Guðbjörgu minni… en eins og með verkefni sem ganga illa hjá mér þá varð þetta ansi langdregið. ég er semsagt búin að vera að vinna í þessu af og til síðast fyrir síðustu jól!
September 02, 2012
nýjasta æðið mitt er sokkaprjón…..
Friðþór er lengi vel búinn að benda mér á að það sé jú mjög hagkvæmt að kunna að prjóna sokka en ég var alltaf voða hrædd við það… og þá útaf hælnum! en það þýðir víst ekki annað en að byrja!
þessir sokkar eru úr Novita garninu, því sama og er í uglugallanum, og þeir eru með halldóruhæl/frönskum hæl.

fredag 28. september 2012
nú bíð ég eftir stórum pakka frá tengdafólkinu. elskuleg tengdamóðir mín ætlar að senda mér nýjasta blaðið frá Ístex og nokkrar plötur…. mikið mikið er ég spennt!
http://www.istex.is/prjonabok/Istex32.html
http://www.istex.is/prjonabok/Istex32.html
September 02, 2012
ég sá þessa mynd í gær og fannst hún nokkuð skondin :)
September 02, 2012

eitt af mínum síðustu afrekum!
ég fékk uppskriftina hjá Handprjón.is á facebook
þetta er uglugallinn mikli, hann er úr Novita Veljesta og er hlýr og góður. ég tók mér ansi langan tíma í þetta prjón, tæpt hálft ár en það hafðist að lokum :)
enda eins gott því veturinn er ansi harður hérna í norður Noregi.
September 02, 2012
prjónablogg
mig hefur lengi langað til að byrja á prjónabloggi en ekki haft mig í það fyrr en nú.
ég byrjaði að prjóna fyrir alvöru um 21 árs aldurinn og þá var markmiðið að læra að prjóna svo ég gæti prjónað á börnin mín. fyrsta verkefnið mitt var lopapeysa sem varð alltof stór á mig en alltof lítil á Friðþór þannig að ég gaf kínverskum vini mínum hana, hún fór honum vel.
fyrst um sinn prjónaði ég bara úr lopa og þá helst íslenskar lopapeysur. íslenski lopinn er jú svo æðislegur. þegar ég var ólétt af Guðbjörgu, eldri stelpunni minni, þá prjónaði ég á hana heimferðarsett og varð ekki lítið heilluð af ungbarnaprjóninu.
í dag er ég aðeins byrjuð að færa mig yfir í öðruvísi verkefni og það verður gaman að sjá hvernig prjónið mitt verður í framtíðinni…

Abonner på:
Kommentarer (Atom)