Viser innlegg med etiketten uppskriftir. Vis alle innlegg
Viser innlegg med etiketten uppskriftir. Vis alle innlegg

søndag 8. september 2013

http://thevintagepatternfiles.blogspot.co.uk

Á flakki mínu um veraldarvefinn fann ég þessa skemmtilegu vefsíðu. Þarna eru prjóna-, hekl, textíls- og útsaumsuppskriftir allt frá 1800 til 1970.

Ég gæti endalaust skoðað þessa vefsíðu og lesið yfir munstrin. Nokkur munstur hafa núþegar vakið áhuga minn.

t.d. eru þessar leggingsbuxur frá 1910 rosa flottar :)


onsdag 20. mars 2013

norskir páskasokkar

og hér er enn ein uppskriftin að páskasokkum.... ég held bara að ég verði að leggjast enn og aftur í sokkaprjón!

tirsdag 5. mars 2013

DROPS páskasokkar

það er aldrei að vita nema maður skelli í svona sokka yfir páskana :)
hmmm ætli ég eigi einhversstaðar gult garn.....

søndag 17. februar 2013

torsdag 24. januar 2013

Ég held áfram að horfa í kringum mig og skoða norskar prjónahefðir... og ég held áfram að skoða maríusarmunstrin. Hérna fann ég síðu þar sem er búið að breyta maríusarmunstrinu aðeins, mjög flott!

http://dirtyembroideries.com/







tirsdag 6. november 2012

jólavettlingar

ohh hvað ég væri til í svona jólavettlinga, helst úr tvöfölldum plötulopa :)

tirsdag 30. oktober 2012

Ég gekk í Hobbyklubben.no fyrir stuttu síðan og fékk sendan heim pakka af gjöf. Í honum voru bokin Julekuler sem er með fullt fullt af uppskriftum af jólakúlum, bókin Norsk strikk sem er með fullt af hefðbundnum norskum peysum og munstrum og svo fékk ég aðra bók um jólaföndur. Mjög gaman!!

En hérna er uppskrift af jólahjörtum til að skreyta með, um að gera að prjóna smá jólaskraut ;)

torsdag 4. oktober 2012


Lopasokkar með Halldóruhæl.
tekið af: http://www.thingborg.net/


Þríþættur plötulopi og tvinnað band, undið saman.
Prjónastærð nr. 4 ½ og 5.
Fimm stærðir.

Fitjaðar eru upp laust á fjóra prjóna 5-6-7-8-9 lykkjur á hvern prjón. Prjónaðir brugðningar, 2 sléttar og 2 brugðnar, jafnmargar umferðir og fitjaðar voru á alla prjónana eða 20-24-28-32-36 umferðir. Þá er prjónað slétt prjón í hring, jafnmargar umferðir og lykkjur eru á prjóni eða 5-6-7-8-9 umferðir. Næst er hælstallur prjónaður, helmingur lykkjanna færður saman á einn prjón og prjónað fram og til baka 10-12-14-16-18 umferðir með steypulykkju á jöðrum, þ.e. fyrsta lykkja tekin óprjónuð. Jaðarlykkjur verða þá jafnmargar og lykkjufjöldi á prjóni. “Gætið þess, að jaðarlykkjurnar sjeu fallegar steypilykkjur,ekki lausar” stendur í gömlu uppskriftinni og er einnig lögð sérstök áhersla á það hér.
Hællinn á leistunum er sá sem víða um land gengur undir nafninu “Halldóruhæll”, kenndur við Halldóru Bjarnadóttur sem vafalaust hefur verið ötul við að kenna hann, þegar hún ferðaðist um sem himilisiðnaðarráðunautur, í staðinn fyrir totuhælinn(prjónaður eins og tátota) sem áður mun hafa verið algengastur.
Hællinn er prjónaður áfram á tvo prjóna, tekið úr báðum megin við beina tungu sem gengur fram undir ilina. Byrjað er í brugðinni umferð.Prjónaðar eru 1-1-2-2-2 lykkjurfram yfir miðju, þá eru 2 brugðnar saman og snúið við. Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð og prjónaðar 2-2-4-4-4 sléttar, 2 saman sléttar ( lykkjan tungumegin ofan á ), fyrsta lykkja tekin óprjónuð, prjónaðar 2-2-3-3-3 brugðnar, súið við o.s.fr. Hæltungan prjónuð áfram á þennan hátt þar til eftir standa 4-4-6-6-6 lykkjur, endað á sléttum prjóni.
Við jaðra hælstallsins eru nú teknar upp 5-6-7-8-9 lykkjur hvorum megin og þegar lykkjum í tungu hefur verið skipt í tvennt eru 7-8-10-11-12 lykkjur á hvorum prjóni á il, en á ristarprjónum eru áfram 5-6-7-8-9lykkjur. Prjónuð er ein umferð, síðan eru teknar úr umframlykkjur á il þannig: Umferðin byrjar á miðri il, á fyrsta prjóni eru 2 síðustu lykkjur prjónaðar saman, á fjórða prjóni eru fyrst 2 lykkjur prjónaðar saman ( steypiúrtaka). Ein umferð prjónuð á milli úrtaka. Eftir úrtökuumferðir eru aftur 5-6-7-8-9- lykkjur á öllum prjónum og framleisturinn prjónaður áfram að úrtöku við tá. Prjónaðar eru 20-24-28-32-36 umferðir, talið frá hælstalli.
Gömul og góð aðferð við sokkaprjón er mæla á á il, til þess að fá ilina heldur lengri en ristina. Það er gert þannig að snúið er við eftir seinni prjón á il og lykkjur á il prjónaðar brugðnar tilbaka, snúið aftur við og prjónað aftur slétt í hring. Myndast við þetta tvær aukaumferðir á il. Um leið og snúið er við er bandinu brugðið um næsta ristarprjón og verða þá til lykkjur sem eru prjónaðar með fyrst og síðustu lykkjum á ristarprjónum í næstu umferð. Með þessu er komið í veg fyrir göt myndist þar sem snúið er við. Tvisvar er mælt á með 8-12- umferða millibili.
Ámæling mun áður hafa verið gerð þannið að þegar prjónað hafði verið í lykkjurnar var bandið mælt þrisvar sinnum lengra en breiddin á prjóninu sem átti að mæla á og byrjað þar að prjóna aftur úr sömu lykkjum, átti lengd spottans að standa heima. Síðan var prjónað í þriðja sinn í sömu lykkju með lausa bandinu og áfram í hring. Útkoman er hin sama, tvær aukaumferðir, en þessi aðferð skýrir orðin “að mæla á og ámæling”. Þessi aðferð við ámælingu er enn notuð af sumum prjónakonum. E.t.v. hefur aðferðin orðið til áður en lærðist að prjóna brugðið frá röngu til að fá slétt prjón á réttu, venjan var að prjóna í hring. Að öllum líkindum hefur sú tækni að prjóna brugðna lykkju komið síðar við sögu hér á landi en slétta lykkjan. Á myndum af prjónlesi , sokkum og vettlingum frá 16. og 17. öld, sem hér hafa fundist við uppgröft,er engar brugðningar að sjá né brugðnar lykkjur, aðeins slétt prjón. Þessi aðferð við ámælingu hefur e.t.v. haldist við vegna þess að mörgum hættir til að prjóna brugðnar lykkjur lausari en sléttar.
Eftir að framleistur hefur verið prjónaður er farið að taka úr á tátotu. Allar úrtökuumferðir eru prjónaðar þannig að á fyrsta og þriðja prjóni er prjónað þar til 3 lykkjur eru eftir, þá eru 2 lykkjur prjónaðar saman og 1 slétt, á öðrum og fjórða prjóni er 1.lykkja slétt,síðan eru 2 prjónaðar saman (steypiúrtaka) og afgangurinn prjónaður sléttur. Eftir fyrstu útökuumferð eru prjónaðar 3 umferðir, eftir aðra 2 umferðir og síðan 1. Eftir það er tekið úr í hverri umferð þar til 2 lykkjur eru eftir á prjónunum. Þá er bandið slitið og dregið í gegnum lykkjurnar. ( Á minnstu sokkunum eru aðeins prjónaðar 2 umferðir og 1 á milli úrtaka og síðan tekið úr í hverri).
Síðast er gengið tryggilega frá endum,leistarnir þvegnir og framleisturinn e.t.v. þæfður örlítið í leiðinni(brugðningarnir missa fjaðurmagnið ef þeir eru þæfðir),undnir vel og látnir þorna sléttir á handklæði


lørdag 29. september 2012



ókeypis uppskrift mánaðarins frá Du store alpakka (þú stóra lamadýr ;) ég er að elska norskuna!) þarna er komin ágætis ástæða til að prófa nýja garnið þeirra; HEXA.

þessi fer á to-do listann! 

hvernig á að prjóna sokka með halldóruhæl/frönskum hæl?

það er í rauninni mjög einfalt. fyrst er fitjað upp og prjónað stroff. passa þarf að fitja upp á sléttri tölu, hér eru lykkjurnar 44 og ég prjóna 2x2 stroff (2 slétt 2 brugðin) ca 6 cm.

þegar stroffið er orðið nógu langt þá prjóna ég 4 umferðir slétt. síðan skipti ég lykkjuföldanum í tvennt, hér 22 lykkjur. ég prjóna 22 lykkjur og geymi hinar 22 lykkjurnar á 2 prjónum.

síðan byrja ég á hælstykkinu. þá prjóna ég fram og til baka, slétt á réttunni og brugðið á röngunni. passa þarf að taka upp fyrstu lykkju hverrar umferðar eins og þú ætlir að prjóna í hana. það þarf líka að passa þegar prjónað er á röngunni að prjóna síðustu lykkjuna líka brugðið.

hér prjónaði ég hælstykkið ca 5 cm.
því næst skipti ég lykkjunum á hælstykkinu í þrennt, hér 7-8-7 og prjóna fyrstu 15 lykkjurnar. svo sný ég við og prjóna frá röngunni næstu 8 lykkjur brugðið. þá sný ég aftur við og prjóna frá réttunni næstu 7 lykkjur, eða þangað til 1 lykkja er eftir að gati, og tek þá 1 lykkju óprjónaða, prjóna næstu og steypi svo óprjónuðu lykkjunni yfir. síðan sný ég við og prjóna frá röngunni þar til 1 lykkja er eftir að gati og prjóna þá 2 lykkjur brugðnar saman. þetta er svo endurtekið þar til miðlykkjurnar 8 eru eftir á prjóninum.

þá þarf að taka upp hliðarlykkjurnar á hælstykkinu. ég sný röngunni að mér og tek upp innri lykkjurnar, hér 10 lykkjur á hvorri hlið.
síðan prjóna ég 1 umferð yfir og þegar ég prjóna í hliðarlykkjurnar þá tek ég í þær á röngunni þannig að snúningur komi á lykkjuna þegar hún er prjónuð. ef hliðarlykkjurnar verða ekki snúnar þá snúa þær vitlaust á prjóninum og þá er einfalt að snúa þeim bara áður en prjónað er í þær á röngunni.

þá er byrjað á úrtöku því það þarf að ná upphaflegum lykkjufjölda, hér 44 lykkjur. úrtaka byrjar þar sem umferðin byrjar (á hliðinni á hælnum). þá er 1 lykkjan tekin óprjónuð, næsta lykkja prjónuð og síðan er óprjónuðu lykkjunni steypt yfir. þá eru prjónaðar næstu 19 lykkjur (eða þar til komið er á hina hliðina á hælnum) og þá eru 2 lykkjur prjónaðar saman, síðan 1 tekin óprjónuð og sú næsta prjónuð og síðan steypt yfir. þá er prjónað til enda umferðar og 2 síðustu lykkjurnar prjónaðar saman.
þessi úrtaka er gerð í annarri hverri umferð þar til ummhaflegum lykkjufjölda er náð.

þá er fóturinn prjónaður, hér 10 cm (frá hæl).

síðan er úrtaka fyrir tá og hún er alveg eins og hælaúrtakan nema að þegar helmingi lykkjuföldans er náð, hér 22 lykkjur, þá er tekið úr í hverri umferð þar til ca 6 lykkjur eru eftir á prjónunum. þá er bandið dregið í gegnum lykkjurnar og togað í.

sokkurinn er tilbúinn!!

og hér er önnur barnauppskrift sem væri gaman að prjóna. þetta eru samaföt, kjóll, buxur og húfa.

ég held áfram að gúggla prjónauppskriftir frá Finnmörku. hérna fann ég samapeysu og húfu á börn sem gaman væri að prjóna. þetta er líka einfalt og flott munstur.