søndag 8. september 2013

http://thevintagepatternfiles.blogspot.co.uk

Á flakki mínu um veraldarvefinn fann ég þessa skemmtilegu vefsíðu. Þarna eru prjóna-, hekl, textíls- og útsaumsuppskriftir allt frá 1800 til 1970.

Ég gæti endalaust skoðað þessa vefsíðu og lesið yfir munstrin. Nokkur munstur hafa núþegar vakið áhuga minn.

t.d. eru þessar leggingsbuxur frá 1910 rosa flottar :)


torsdag 29. august 2013



ég ákvað að skella í eitt par af vettlingum úr bókinni góðu. þetta eru fjallkarlafells vettlingar. mér finnst munstrið mjög skemmtilegt. ég ætla reyndar að hafa hinn vettlinginn fjallkonufells vettling, einsog sýnt er á myndunum í bókinni.
vettlingarnir eru úr kambgarni.

tirsdag 27. august 2013




Friðþór var svo góður að kaupa fyrir mig þessa bók um daginn þannig að nú sit ég og fletti og læt mig dreyma um vettlingaprjón.

søndag 25. august 2013

Jæja og nú er ennþá lengra síðan síðast. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur, flutningar í Noregi og ferðalag til Íslands. Ég er þó alltaf að prjóna eitthvað svona inn á milli.



Við vorum að flytja frá Alta til Narvik og okkur langaði til að gefa leigusalanum okkar í Alta eitthvað íslenskt í kveðjugjöf. Ég prjónaði því þetta vesti handa henni. Þetta átti reyndar að vera peysa en Friðþór sagði að það væri meira notagildi í svona vesti þannig að ég sleppti bara ermunum. Þetta er peysan Perla úr Fleiri Prjónaperlum og vestið er úr einföldum plötulopa. Ég notaði bara þann lopa sem ég átti til í munstrið en Friðþór keypti þennan ljósgráa lit þegar hann fór til Íslands í vor. Mér finnst hann mjög fallegur og mér finnst vestið koma vel út.

Það er ýmislegt sem ég hef verið að prjóna og langar að prjóna akkurat núna en það væri nú óskandi að klára norsku peysuna hennar Kollu vinkonu, allavega í náinni framtíð. Sú peysa er næstum tilbúin, á bara eftir að klára munstursbekkinn og kragann en peysan tók svo mikið pláss að hún varð eftir í Noregi þar til Friðþór fer þangað næst. Kolla fær peysuna vonandi fyrir köldustu vetrarmánuðina í Alta :)

mandag 27. mai 2013

á prjónunum í dag....



er norsk lopapeysa á vinkonu :)

lørdag 11. mai 2013

ég hef ekki sinnt blogginu mínu í langan tíma... ég tók mér smá prjónapásu og átti í erfiðleikum með að koma mér í gang aftur. en núna er ég byrjuð aftur á fullu og er núþegar með nokkur verkefni á prjónunum.



þessi peysa var ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að taka mér pásu. þessa peysu prjónaði ég á Stefaníu en stelpurnar í mömmuhópnum prjónuðu nokkrar svona peysur á krílin sín. þetta er einföld peysa en mér tókst að klúðra munstursbekknum og fór í fílu við peysuna, hennti henni út í horn og kláraði ekki fyrr en einhverju seinna.

en þetta er fínasta peysa :) hún er úr Ýr blaði og er í st. 1 árs en ég lengdi búkinn og ermarnar. ég notaði baby ull frá dale í peysuna og er mjög ánægð með útkomuna.

fredag 5. april 2013

á prjónunum í dag..... er samprjón.

mömmuhópurinn minn er með samprjón, við ætlum að prjóna ungbarnapeysuna úr 41. tbl. Ýr.



hérna eru litirnir sem ég ætla að nota. peysan sjálf verður svona beinhvít á litinn og svo á ég eftir að ákveða hvaða liti ég nota í munstrið. ég hallast að því að nota bara bláu tónana en þessi græni væri krúttlegur líka.

hvað finnst ykkur?

peysan á semsagt að vera á Stefaníu og ég prjóna hana í st. 1 árs úr baby ull frá Dale, ég er miklu hrifnari af því garni heldur en lanett. 

onsdag 3. april 2013

jæja loksins nýtt blogg!

ég var búin að plana svaka prjónaprógramm yfir páskana en nennti svo ekki að prjóna...

en í dag byrjaði ég aftur og hafði mig í að klára stykkið sem ég var með. þetta átti upphaflega að vera peysa. þetta er semsagt góða gamaldags fléttupeysan hennar Marte Helgetun. í þetta vesti fóru tvær dokkur af baby ull frá dale. ég átti bara til þessar tvær dokkur og vildi ekki hafa ermarnar í öðrum lit þannig að þetta varð útkoman. ekki slæmt. ég ætla að máta Stefaníu í vestið á morgun.




onsdag 20. mars 2013

norskir páskasokkar

og hér er enn ein uppskriftin að páskasokkum.... ég held bara að ég verði að leggjast enn og aftur í sokkaprjón!
á prjónunum í dag...



er peysa á Stefaníu úr baby ull frá Dale, sem er sennilega uppáhalds garnið mitt til að prjóna úr á lítil kríli. Stefanía er að vísu stækkandi kríli og því er þetta aaaaðeins meiri vinna hehe.

þetta er peysa úr bókinni hennar Marte Helgetun og heitir God gammeldags gense. peysan heillaði mig um leið og ég sá hana en þetta er svaka vinna útaf fléttumunstrinu.
peysan á svo að vera úr Mirasol garni prjónuð á prj. nr. 4 en ég fiffa þetta til og prjóna á prjóna nr. 3

það verður gaman að sjá útkomuna

torsdag 14. mars 2013


 
a prjonunum þessa vikuna eru pilagrimsvettlingar ur bokinni Norsk strikk. Eg var að klara fyrri vettlinginn i dag. Mer fannst vettlingurinn stor en hann passar fint.

tirsdag 5. mars 2013

DROPS páskasokkar

það er aldrei að vita nema maður skelli í svona sokka yfir páskana :)
hmmm ætli ég eigi einhversstaðar gult garn.....

mandag 4. mars 2013



og maríusarsokkarnir eru tilbúnir!

það er svo gott þegar maður nær nú að klára eitthvað :)

Mars mánuður er loksins kominn og það þýðir bara nýr prjónamánuður !!
alltaf gaman að því :)



ég tók til í hillum hérna heima hjá mér og raðaði öllum prjónablöðum og bókum í sömu hilluna. þetta er semsagt prjónauppskriftasafnið mitt :)
ég held því að ég afþakki frekari gjafir og uppskriftasendingar, takk fyrir kæru vinir en ég á nóg amk út þetta ár!!



á prjónunum í dag eru mariusarsokkar sem ég er að reyna að klára. ég ætla að senda gamalli vinkonu þessa sokka, hún var að eignast barn og mig langaði að gefa eitthvað lítið :) þá eru sokkar alveg tilvalnir!
ég tek upp munstur úr þessu blaði. munstrið er reyndar ætlað á húfu en virkar alveg jafnvel á sokk.



og hérna er sokkurinn í nærmynd. mér finnst hann fallega ljótur, einsog flestir sokkar sem ég prjóna.

onsdag 20. februar 2013

á prjónunum í dag er jólakjóllinn hennar Guðbjargar



þetta átti að vera jólakjóllinn en ég hafði mig ekki í að klára hann.

ég er mjög spennt fyrir þessum kjól, hann er úr fallega rauðu Mirasol garni og uppskriftin er úr bókinni hennar Marte Helgetun og heitir kjóllinn bamsekjole :)

søndag 17. februar 2013

vinterblomstervotten

uppskrift að skemmtilegum vettlingum, á norsku



Nostalgi

Þegar við förum heim til Íslands þá verður Stefanía litla orðin 1 árs og þá á eftir að skíra hana. Hún er alltof alltof stór í skírnarkjólinn, sem ég saumaði í handavinnu í 9. bekk, þannig að ég var að spá í að prjóna á hana skírnarkjól í staðinn.

Er þessi ekki alveg tilvalinn? Ætti hann þá að vera í þessum litum eða öðrum?